lílíla
vala - 2:02 PM
Thursday, January 02, 2003
Hallló palló! Núna þreyti ég frumraun mína í því að vera af tegundinni bloggari og ég vona að hún takist vel upp..í það minnsta sæmilega:) Jólahátíðinni lýkur nú senn og get ég ekki beint sagt að ég bíði með tilhlökkunarfiðring í maganu eftir mánudeginum næsta. En þann dag kl7:40 um morguninn, rís ég upp úr rekkju minni og sinni morgunverkunum sem maður sinnir ekki í fríi. Með því meina ég að þá fer ég í flýti, klæði mig,greiði mér, skelli í mér einni skál af einhvers konar morgunkorni og bursta mig. Síðast en ekki síst þá hleyp ég út og skelli mér í skólann! Já ég held að ég hafi sagt nóg í bili, þar sem að þetta er nú einu sinni fyrsta skiptið.
vala - 7:02 PM
Hallló palló!
Núna þreyti ég frumraun mína í því að vera af tegundinni bloggari og ég vona að hún takist vel upp..í það minnsta sæmilega:)
Jólahátíðinni lýkur nú senn og get ég ekki beint sagt að ég bíði með tilhlökkunarfiðring í maganu eftir mánudeginum næsta. En þann dag kl7:40 um morguninn, rís ég upp úr rekkju minni og sinni morgunverkunum sem maður sinnir ekki í fríi. Með því meina ég að þá fer ég í flýti, klæði mig,greiði mér, skelli í mér einni skál af einhvers konar morgunkorni og bursta mig. Síðast en ekki síst þá hleyp ég út og skelli mér í skólann! Já ég held að ég hafi sagt nóg í bili, þar sem að þetta er nú einu sinni fyrsta skiptið.
-Vala Hetja-
vala - 6:51 PM